miðvikudagur, janúar 11, 2006

reality check...

hvað skal segja? hmm ekki buin að bulla hér í ágætis tíma og þar sem ég hef ekkert betra að gera(eða þanni) þá getur maður alveg eins pikkað eitthvað inn...

já það er komið árið 2006. tíminn flýgur, skrítið hvað maður heldur alltaf að maður hafi allan heimsins tíma en fattar svo jú kannski ári seinna að jamm árið er búið og nýtt að byrja og maður ekki nærri búinn að nýta tímann eins vel og maður vildi ...hmm pæling.

allavega, ég er byrjuð í þriðja menntaskólanum... hehe ég get víst ekki verið kjurr... Borgó varð fyrir valinu og lýst mér held ég ágætlega á þetta allt. Tilvera mín var frekar einföld í fyrra, hætti í FG og fór að vinna í sjoppu og var svo líka í tónó og gerði svo ekki annað enn að hitta vini mina á kvöldin og hanga fram á nótt... góðir tímar. Núna byrjar námið aftur og maður á sennilega ekki eftir að gera mikið annað en hanga heima og læra... en maður hefur helgarnar sem munu bjarga lífi mínu allavega.. samkomur á föst og sun og svo ju bestu stelpukveld ever á fimmtud.... það á eftir að halda mér gangandi. ég get ekki að því gert að vera svolítið kvíðin fyrir þessu ári... byrja aftur í skóla og það nýjum þar sem mar þekkir allt of fáa og maður er ekki alveg viss hvort námsleiðinn sé alveg horfinn en það er víst ekki annað hægt að gera enn að horfa brosandi inn í framtíðina og vona hið besta.


tja ég held ég hafi ekki mikið meira að segja í bili... annað en að margt er búið að ganga á árið 2005, held varla að ég hafi upplifað viðburðaríkara ár, bæði súrt og sætt en þanni er víst þetta blessaða líf..
bitter-sweet..besta bragðið...?

bara ég @ miðvikudagur, janúar 11, 2006


fimmtudagur, september 15, 2005

Mig langar á biblíuskóla...

bara ég @ fimmtudagur, september 15, 2005


föstudagur, júní 10, 2005

jæja jæja eg er barasta komin með vinnu á american style!! sveittur staður en svaka stuð og gott að borða í matarpásunum =P svo er það náttla líka bakaríið í suðurveri... þanni eg hef alleg nóg að gera! var að vinna í kvöld a american style, þriðja vaktin min á þeim stað þanni þetta var soldið stress en þetta var samt gaman. græddi auka 4000 kall hehehe fyrir að staupa svona fulla kokteilsósuskál af fitudrullu úr grillinu... þegar eg hugsa um það ettir á þa var þetta virkilega ogeðslegt en það var samt ekkert sjúkt bragð af þessu og alleg 4000 krona virði ;P bra sonna eins konar survivor leikur hehe svaka stuð á manni alltaf hreint.

í gær var svo kósí hjá okkur stelpunum. eg, salóme og gugga fórum og leigðum Garden State og Aladín, fórum á tvær leigur til að fá báðar hehe,´fórum svo í 10-11 og keyptum jarðaber, appelsínur, mango, epli, tómata og basil plöntu og motzarella ost, fórum svo og keyptum baquet í bakaríinu og náðum í júlíu og hertókum svo stofuna hja salóme og hámuðum þetta allt í okkur á meðan við gláptum á garden state og aladín... nuna elska eg scrubs gaurinn ;) áður var hann ekki i miklu áliti hja mer...en jamm þetta var snilldar kvöld, fórum svo á rúntinn og föttuðum í hafnafirði að við vorum að verða bensínlausar, nálin var komin á neðsta og var buin að vera á neðri síðan daginn áður! veit ekki alleg hverni við fórum að því að keyra svona mikið á svonalitlu bensíni en allavega.... og úr því salóme vildi aðeins versla á OB þá lét hún bílinn renna frá hafnafirði og alleg niðrá snorrabraut hehehe... það er ekki hægt að segja annað en að þa'ð sé afrek! þetta var stuð. verðum að gera þetta oftar!.. næst verður það lion king og einhver önnur góð!

arr eg get ekki beðið ettir að fara til ítalíu... það verður svo geðveikt gaman!! bara ég og arna ... og fullt af fabíóum...=P þetta verður áhugaverð ferð... eg mun blogga um þetta allt og köben ferðina líka þegar eg kem heim frá rimini vonandi brún og "sæt"...sjibbí

eg segi ekki meir í bili

bara ég @ föstudagur, júní 10, 2005


fimmtudagur, júní 09, 2005

jæja, jæja, jæja,
kórferð mr kórsins til köben var án efa ein skemmtilegasta ferð sem ég hef farið í! þetta var snilldar ferð, snilldar pípúl,vildi að við værum ennþá úti. þetta var svo skrautlegt allt saman... hehe, útrunnið debetkort, lost á strikinu fyrsta daginn, tívolíferð með þrumuveðri og úrhelli og elvis costello (hverni sem það er nú skrifað) í kaupbæti, sætir svíar og sonna, nuddpartý til fimm um morguninn....grrr ;)...., "kaffi koss" og ég veit ekki hvað og hvað... eg segi kannski meira frá seinna ef ég nenni;) er að pæla i að fara í rúmið.. varð bra að blogga og segja að þessi ferð var geðveik!! =D yndi...

bara ég @ fimmtudagur, júní 09, 2005


þriðjudagur, apríl 05, 2005

Jæja eg held það sé tími til kominn að blogga ikkað sma... eg sem ætlaði að fa mer blog.central blogg en eg hef ekki ennþa nennt að stússat í því þanni þessi verður bra að duga, er hvort eð er ekkert svo dugleg að blogga hehe=) en þetta er nu helst i frettum-
Ég er að fara til köben og yndislegu Ítalíu í júní!! bújahh hehe eg get ekki beðið! =D þarf samt að finna ikkerja aðmennilega vinnu ef ég á að hafa efni á þessu! er að fara með mr kornum til köben að raula ikkað skemmtilegt. jamm eg er ennþá í honum börnin góð! hef ekki verið nogu dugleg að mæta á æfingar en það hefur samt aðeins skánað hja mer nuna þvi marr verður vist að kunna ikkað til að geta sungið þarna í danmörku. þetta verður í fyrsta skipti sem eg fer þanga=P tívolíið og svaka... þetta verður stuð! Förum 1. júni held eg bra! og svo er eg að fara með frænku minni til rimini 15. júní held eg í viku og ég ætla sko að sleikja sólina! hun hringdi i mig bra einn daginn í mars og spurði hvort eg vildi ekki koma með ser í viku til Rimini. Við höfðum ekki spjallað í heila eilífð þanni þetta var óvæntur glaðningur! þetta verður svo geðveikt! strönd og sól og versla og skoða og who knows hvað annað=) á samt ettir að sakna ástinnar minnar... jahh eg var vist ekki búin að segja frá því her að eg er komin með einn sætann í bandi :) hehe hann helgi minns.. buin að vera saman i heila fjóra mánuði! =* gegt skondið að hann á ammæli bra deginum á ettir mer! við erum svo samrímd eða hvað sem marr segir;p en jamm eg get ekki beðið ettir júní=) jahh svo má ekki gleyma parísarbúanum rút kallinum sem kemur vonandi í júni nema það hafi ikkað breyst.. vona ekki... þanni nóg að hlakka til þegar þessi skóli er búinn! arr eg get ekki beðið... eg er farin
tjá

bara ég @ þriðjudagur, apríl 05, 2005


föstudagur, febrúar 18, 2005

23 júní...

rúturinn okkar kemur heim á klakann =D

bara ég @ föstudagur, febrúar 18, 2005


fimmtudagur, desember 16, 2004

beygla með rjómaosti


jæja ég hélt það mundi aldrei koma fyrir en juju það gerðist! mér tókst að gleyma að senda klöru ammælis sms.... eins og það sé ekki nóg að ég er algjörlega búin að missa sambandið við alla gömlu súkkulaðibitana mína því ég hringi aldrei í neinn og enginn hringir í mig þanni það er allt í bípí að þá jaja ég gleymi að óska klöru minni til hamingju með ammælið 12. des... ... skólinn búinn og ég farin að vinna slatta í hagkaup og ég er ekki komin í neitt jólaskap sem er sorglegt... mér fannst ég missa af jólunum í fyrra og ég held ég eigi líka eftir að gera það núna... þessi vinna alla daga gerir útaf við jólin en hvað getur maður gert??? maður þarf jú á þessum peningaviðbjóð að halda til að ... heheh ég veit ekki einu sinni akkuru... jah jú til að geta keypt ikkað fallegt handa famelíunni og vinum en annars ferð þetta bara í ikkern oþverra sem maður borðar í kaffinu áður en maður fer aftur inn í brjálæðið í hagkaup. yndislegt líf!
mér gekk bra ágætilega í prófunum... féll ekki. fór í dag að sækja einkunnirnar uppí skóla og að taka allt myndlistardraslið mitt heim... og halda svo áfram að vinna... ég ætla bra að vona að maður fái ágætis pening út úr þessu.

þetta líf er áhugavert... hvað getur maður sagt annað en það? það er enginn draumur í spiladós... það er ljóst. en öðru hvoru kemur einhver krús og hressir upp á mann og manni líður ágætlega í eitt augnablik.... og svo hellist kaldur raunveruleikinn yfir mann á ný...
hverni væri lífið í spiladós?

þau lýsa fegurst er lækkar sól
í bláma heiði mín bernsku jól
er hneig að jólum mitt hjarta brann
í dásemd nýrri hver dagur rann

það lækkar stöðugt á lofti sól
þau brostu í nálægð, mín bernsku jól
og sífellt styttist við sérhvern dag
og húsið fylltist af helgibrag

ó blessuð jólin er barn ég var
ó mörg er gleðin að minnast þar
í gullnum ljóma hver gjöf mér skín
en kærust voru mér kertin mín

ó láttu Kristur þau laun sín fá
er ljós þín kveiktu er lýstu þá
lýstu þeim héðan er lokast brá
heilaga guðsmóðir himnum frá



bara ég @ fimmtudagur, desember 16, 2004


.: Bloggarar :.

Rútur
meme
Júlí emmerrlingur
Jói verslingur
gugga

.: Linkar .:

batman.is
Skólafélag MR
Framtíðin
rugl

.: webbie :.

blogga?
*guestbook*

.: speak :.

-tagboard here...



pls do not delete...thanx

.: dream * star :.